<$BlogRSDUrl$>
Google

laugardagur, mars 27, 2004

fjórði bloggprósi 

umrót í
fylgsni lágfættrar
skjátu því
risið eftir
engum bíður

gula ljósið
ýmist á
eða af



Halldóra við
hliðina á

KB-banka
bíður á
vinstri hönd




fimmtudagur, mars 25, 2004

Ef hægt væri að hjálpa honum að leita... 

Var að finna þennan áhugaverða vef.

Annars er allt í þessu fína að frétta fyrir utan að ég þurfti að flýja íbúðina mína í gær. Ég er komin aftur heim og er að fara að skipta um lása.
Löng saga.
Best þið lesið hana barasta á Skottunni.

Rosalega finnst mér Lava Hammerssonur flottur á þessari mynd. Ég er líka óskaplega ánægð með hvað Sveimhugi er duglegur við að halda lífi í Frussunni. Ég hef hins vegar ekki getað kosið í nýjustu könnuninni okkar.
Þetta er allt of erfitt. Hvernig er hægt að gera upp á milli bananaköku og hrísgrjónagrauts?

Like father, like son....... 



miðvikudagur, mars 24, 2004

þriðji bloggprósi 

líf mitt
sem samsteypu-
uppi krefst
framúrskarandi hæfni
í mannlegum
samskiptum, agaðra
vinnubragða, metnaðar,
útsjónasemi og viðskiptavits

fæstir hefðu
trúað að
menn sem
áður skúruðu
grænköflóttan gólfdúk
með bindi
á nóttunni
myndu síðar
geyma nafnspjaldið
sitt í
þar til
gerðri silfraðri
öskju og
gefa réttum
aðilum til
að sýna
fram á
framúrskarandi færni
í mannlegum
samskiptum.



mánudagur, mars 22, 2004

OPIÐ HÚS 

Mér og spúsu minni áskotnuðust veggir utan um símann okkar:





Af því tilefni verður opið hús í Þverholtinu að Varmá frá þrjú fram eftir kveldi næsta laugardag.

Þér er boðið!

sunnudagur, mars 21, 2004

Nú er mál að linni.

Hvílík ládeiða hér á Frussunni, sem fyrr skoða ég vefinn oft á dag. Það mætti halda að fólk hefði eitthvað betra við tímann að gera en að hanga á netinu. Slíkt væri vissulega hugsvik við ættarvefinn.

En nóg um það.

Nú skal verslað.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting by HaloScan.com