<$BlogRSDUrl$>
Google

föstudagur, nóvember 05, 2004

Frumflutningur 

Fann þessa krækju og langaði að deila henni með ykkur:

Bubbi syngur klukkutíma gamalt lag, tileinkað farandverkamönnum.

fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Presidente George W. Bush 

George W. Bush es el 43er Presidente de los Estados Unidos.



miðvikudagur, nóvember 03, 2004

Gwelda Hammers gjörir kunnugt... 

... að hún er komin í nammibindindi fram að jólum.

mánudagur, nóvember 01, 2004

Datt sona í hug... 

... að látykkur vita að ég er komin á nýjan bíl. Hann heitir Vilfreð.

sunnudagur, október 31, 2004

Svefnin langi. 

Enn ein helgin liðin og þrátt fyrir stór og mikil fyrirheit fór hún á töluvert annan máta en gert var ráð fyrir. Fríhelgi frá skemtanalífi íslendinga og stefnan var sett á að vera yfirmáta duglegur heima hjá mér. Fór þó ekki svo. Var latur og svaf meira og minna alla helgina. Vaknaði reyndar upp í morgunn og skrapp mep Spúsu ásamt heimasætunni í heilsubótargöngu með hópi af frussungum. Mér barst semsagt til eyrna frétti af Frussungum sem stunda heilsubótargöngur á sunnudagsmorgnum. Okkur þótti sem sagt tilvalið að taka þátt að þessu sinni, okkur til andlegrar uppliftingar og einnig svo dagurinn mætti verða til mikilla verka. Það er skemmst frá því að segja að andleg upplifting varð þó nokkur en verk þau er biðu á heimilinu, bíða enn. Við þurftum sem sagt að leggja okkur töluvert eftir gönguna og það gerðum við með bravör.

Sem sagt sofið og sofið og sofið og sofið.

Annað var það ekki.



This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting by HaloScan.com