<$BlogRSDUrl$>
Google

þriðjudagur, maí 09, 2006

Al Capone 

Þegar lögreglan braust inn í falda vöruskemmu Als Capones í þriðja skiptið í sama mánuði varð hann sannfærður um að það væri uppljóstrari á hans snærum. Eftir að hafa gert ítarlega úttekt á sínu liði voru aðeins fjórir manna hans sem komu til greina, þeir Tony, Sunny, Donny og Jimmy.

Ævareiður yfir þessum svikum fór Capone með þá á afvikið byggingarsvæði þar sem þeir voru allir grafnir í steypu upp að hálsi. Í steypunni mynduðu þeir beina röð þannig að hver þeirra horfði á þá sem á undan voru; Tony var fremstur, þar næst kom Sunny, þá Donny og aftastur var Jimmy.

Á milli tveggja fremstu mannanna var burðarveggur. Tony sá því engan þar sem hann var grafinn hinum megin við vegginn. Sunny snéri einnig andlitinu að burðarveggnum og sá því engan heldur.

Þar sem Capone var illa við að missa fjóra af mönnum sínum vegna svika eins þeirra, ákvað hann að gefa þeim eitt tækifæri enn.

Capone var mikill smekkmaður og hafði dálæti á höttum. Hann gerði því eftirfarandi samning við mennina. Hann setti hatta á þá alla; hvítan hatt á Tony, bláan á Sunny, hvítan á Donny og Jimmy sem var aftastur fékk bláan hatt. Þeir fengu jafnframt að vita að tveir þeirra væru með hvíta hatta og tveir með bláa hatta.

Samningurinn var einfaldur; gæti einhver þeirra getið sér rétt til um hvernig hatturinn sinn væri á litinn myndi hann hlífa þeim öllum. Hefðu þeir hins vegar rangt fyrir sér myndu þeir allir enda lífdaga sína grafnir í steypunni. Þeir myndu aðeins fá eitt tækifæri til að losa sig þar sem aðeins einn þeirra fengi færi á að svara. Þeir máttu ekki tala saman, gátu ekki snúið sér við í steypunni og gátu ekki gefið nein merki. Capone sagði þeim að nú myndi reyna á rökhugsun þeirra og hann myndi þá jafnframt sjá hvort það væri þess virði að bjarga þeim.

Nú voru góð ráð dýr fyrir þá Tony, Sunny, Donny og Jimmy. Þeir voru því miður þekktir fyrir aðra hæfileika en skýra hugsun. Við leitum því til lesenda Vísindavefsins um að leysa málin fyrir þá kumpána. Hver þessara manna getur sagt til um það hvernig hatturinn hans er á litinn og hvernig getur hann fundið það út? Lausnin felst eingöngu í rökfærslu en ekki neinum brellum.


Við hvetjum lesendur til að senda okkur tölvupóst með úrlausnum sínum. Svarið verður svo birt innan tíðar ásamt nöfnum þeirra sem senda réttar lausnir.

heimasíða vísindavefsins

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting by HaloScan.com