föstudagur, janúar 24, 2003
miðvikudagur, janúar 22, 2003
þriðjudagur, janúar 21, 2003
mánudagur, janúar 20, 2003
Sælir félagar!
Verið er að kenna Tutlu á bloggið með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Hér kemur fyrsta lexía:
Trína hin fyrsta
Fann þessa frétt á frettir.is. Alger Snilli !!
16. janúar 2003
Nýja hverfið í Garðabæ heitir Sjáland
(ath. ekki Nýja-Sjáland)
Sjáland er nafn nýs hverfis sem fyrirhugað er við Arnarnesvog í Garðabæ en tilkynnt var um nafnið rétt í þessu á blaðamannafundi.
Göturnar heita eftir götum Kaupmannahafnar s.s. Strikið, Norðurbrú, Vesturbrú, Strandvegur og Langalína.
Aðalútivistarsvæðið fær nafnið Bakkinn. Þá verður í hverfinu torg sem mun heita Sautjándajúnítorg.
Fréttir.is leggja til að þessi skemmtilega ákvörðun nái einnig til eldri hverfa bæjarins:
Strætóskýlið Bitabær
breyta varð um nafn gær.
Núna heitir hjallurinn
Höfuðbeinagarðurinn.
Garðaskóli er glatað nafn
grýtum því á minjasafn.
Brimahólmur nefnist nú
nauðvistunarstofnun sú.
Gæfusnautt er Garðatorg
grasserar þar vandi og sorg.
Kannabis og kókaín:
Krístjanía er nafngift fín!
Alla stiga allstaðar
og útidyratröppurnar
kenna skal, sem víst er von
við hann Jónas Hallgrímsson.
Í Breiðási og Brúarflöt
bjóða drósir föl sín göt
Heiti gatna er endurort:
Ístedgade og Vesterport.
Ásdís bjó í Hrísholti
Halla borgarmeistari.
Þarna kallast eignin öll
Amalíenborgarhöll.