sunnudagur, júní 01, 2003
Gunnar nokkur Birgisson, samsveitungur Lava lokkaprúða, talaði á sínum tíma fjálglega um "hægðir og lægðir"...
Við Maki eigum tólf ára brúðhlaupsafmæli í dag. Í tilefni af því var seytján stiga hiti í Reykjavík og hátíðahöld við höfnina, flugsýning og fleira spennandi. Sonur drekkti sér nánast í Nauthólsvík og hjólaði svo nærbuxnalaus vestur á Seltjarnarnes, undirrituð bakaði sig í sólinni á meðan Maki sló blettinn og skrapp í vinnuna og keypti blóm. Að lokum var farið á Austur-Indíafjelagið. Þar var etinn hárlosandi kjúttlíngur og síðan skjögrað heim með velsældarglott á vör - í bolaveðrinu. Maki mun ljúka afmælisdeginum á föroyskum tískusýningarfundi á meðan við Sonur horfum á Little Nicky. Æ, nei. Ekki ég. Ætla ekki að skemma svona góðan dag.
Góðar stundir.

föstudagur, maí 30, 2003
Farvel Frans....
Þá er hótelstjórinn farinn með frænda sínum í sveitina og hugsið ykkur, hann sagði ekki einu sinni bless.
Það er greinilegt að þessa dagana er ég er eini maðurinn sem hef áhuga fyrir Frussunni og það þýðir að ég get ekki uppfært mitt eigið sjálf þ.e. http://www.lavinn.blogspot.com. Þangað til fleiri láta í sér heyra verð ég að samnýta texta á báðum síðum. Kona nokkur hafði samband við þáttinn og kvartaði yfir því að nokkuð bæri á stafsetningarvillum í text með yfirskriftinni "Hjaltested eða Hjaltested ?". Undirritaður vill meina að frekar beri að tala um ásláttarvillu þar sem einu errri var ofaukið í lýsingarorðinu ýturvaxna.
Rétt setning á því að vera "Hin ýtuvaxna systir mín, Gvelda, minntist á að ég væri farinn að líkjast klassískum Hjaltested.".
Reyndar minnir þessi ruglingur á drenginn sem sagði " kemur hann ekki gangandi niður Aðalgötuna íklæddur leðurbuxum og hlíðarbol."
Og læt ég hér staðar numið í bili.
Lifið heil.

þriðjudagur, maí 27, 2003
Hjaltested eða Hjaltested ?
Var að velta fyrir mér hvort ég ætti að fara í megrun eða ekki.
Hef ekki enn komist að niðurstöðu.
Hin ýturvaxna systir mín, Gvelda, minntist á að ég væri farinn að líkjast klassískum Hjaltested.
Ég veit svo sem ekki hvort það sé mjög slæmt að líkjast klassískum Hjaltested en hitt er annað mál hvort að það sé gott fyrir mann.
Hjaltesteðar í mínum stærðarflokk hafa verið þekktir fyrir að vera með stíflaðar æðar og lélegt hjarta.
Svo er það náttúrulega spurningin hvort maður geti ekki gert eins og Gvelda, úr Nonna frænda í Dísu frænku.

Jæja gott fólk...
Langt er um liðið síðan bloggað hafað fingur þessir. Nú er fátt um að vera, ég sit hér og bíð. Konan mín fór að ná í númer, ég bíð eftir henni og bílnum. Við Pétur sitjum hér heima og erum á leið að redda honum íslensku skattkorti og að stofna reikning í banka, svona er Ísland í dag:

Alf Poier frá Austurríki er maðurinn!!!!!
Hann er líka mælskur:
Klane Haserl haben kurze Naserl
Und klane Katzerl haben weiche Bratzerl
Und die Frau Holle hot gern die Wolle
Vom Tromeda aus Afrika