föstudagur, febrúar 13, 2004
Veikur - veikari ...
Ég get sosum bætt því við, fyrst tregt er um skriftir, að sama ástand er á mér. Hef ekki upplifað önnur eins ofnæmislaus hnerraköst svo lengi sem elstu menn muna... elsta kerlingin... í mér... a.m.k. assgoti lengi. Horinn hefur tekið sér bólfestu í öndunarfærunum öllum og spýtist í gusum út um þau göt sem opnast hverju sinni í ósjálfráðum hósta- og hnerraköstum og -krömpum. Ég sem er að fara á árshátíð á morgun, í nýjum skóm og meððeim. Ætla að troða upp og allt. Ég held maður verði laglegur með rauðsprengt, útsnýtt nef, kórónu og vasaljós í munninum.