sunnudagur, janúar 28, 2007
Fjósakona fer út í heim
Það er aumt að vera örbloggari þegar maður hefur frá mörgu að segja...
Ég er að fara til Spánar með Gullpungi bróður mínum. Hann verður látinn sofa í kústaskáp af því hann hrýtur. Við verðum á slóðum Pablós.
Ég er að fara til Spánar með Gullpungi bróður mínum. Hann verður látinn sofa í kústaskáp af því hann hrýtur. Við verðum á slóðum Pablós.
Alltaf í boltanum
Handbolti er ekki leiðinlegur fyrir sófakartöflur. Núna, þegar íslenska landsliðið tapar leikjum, er það bara vegna þess að það er að hvíla sig.
Örblogg púnktur komm
Hef gefist upp fyrir tennisolnboga eða ekki tennisolnboga og ákveðið að gerast bara örbloggari. Þetta er fyrsti í örbloggi.