þriðjudagur, janúar 30, 2007
Foreldrar á ferð.....
Þar sem símanúmer Skottu hefur misfarist úr síma mínum læt ég hér með vita að gamla settið komst heilu höldnu til Ameríku stórslysalaust. Ferðalagið gekk vel og álagið á skrokk þeirra gömlu var ekki meira en svo að "skottúr til Köben verður, pís off keik eins og þeir seigja hér".
Annað var það ekki........
Annað var það ekki........
sunnudagur, janúar 28, 2007
Fjósakona fer út í heim
Það er aumt að vera örbloggari þegar maður hefur frá mörgu að segja...
Ég er að fara til Spánar með Gullpungi bróður mínum. Hann verður látinn sofa í kústaskáp af því hann hrýtur. Við verðum á slóðum Pablós.
Ég er að fara til Spánar með Gullpungi bróður mínum. Hann verður látinn sofa í kústaskáp af því hann hrýtur. Við verðum á slóðum Pablós.
Alltaf í boltanum
Handbolti er ekki leiðinlegur fyrir sófakartöflur. Núna, þegar íslenska landsliðið tapar leikjum, er það bara vegna þess að það er að hvíla sig.
Örblogg púnktur komm
Hef gefist upp fyrir tennisolnboga eða ekki tennisolnboga og ákveðið að gerast bara örbloggari. Þetta er fyrsti í örbloggi.